<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur

Þá er enn einn þriðjudagurinn runninn upp. Það er nú ekki mikið að gerast hjá mér þessa dagana en þó eitthvað.
Þar sem ég er skemmtanastjóri REKA (já, það er satt.... og ferlega skemmtileg saga hvernig ég komst inn í innsta hring mafíu skólans, læt hana kannski flakka einn daginn) já semsagt þá fór ég á fund í gær og hitti skemmtanastjóra hinna deildanna og þá sem eru í íþróttanefnd. Við vorum að skipuleggja Sprellmótið sem verður haldið 10. okt. Þetta er alltsaman ljómandi fólk og ég hlakka til að vinna með þeim.
Á föstudaginn er svo vísindaferð í Íslandsbanka og eftir það munu allar deildirnar hittast á Dátanum.... eða þeir sem vilja mæta. Næstu helgi ætlar skemmti- og íþróttanefndin að halda partí, svona svo við kynnumst nú almennilega. Helgina þar á eftir er frí (allavegna í augnablikinu.... Stuðmenn samt í Sjallanum) og svo helgina eftir það er Sprellmótið...... Ekkert skemmtilegra en það. Þannig að það er nóg um að vera í skemmtanalífinu, svo er auðvitað alltaf skóli, næg heimavinna og inn á milli blæs ég í rörið mitt!!

.... Þú ert vangefið djöfullsins grey!!!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?