<$BlogRSDUrl$>

þriðjudagur

Myndir 

Loksins drattaðist ég með tvær filmur í framköllun sem eru búnar að vera ansi lengi uppí hillu hjá mér. Önnur búin að vera þar í ár en hin mun skemur. Hvað get ég sagt..... jú, ég er allavegna ekki alveg með fulle fem þegar ég er að taka myndir. Ég er ofboðslega mikið fyrir það að taka mynd af mér sjálfri með einhverjum öðrum og ég held að ég verði að hætta því, allt úr fókus og ves. Einnig mikið fyrir það að taka myndir sem ég held að verði ótrúlega listrænar en eru það svo innilega ekki..... voru til dæmis nokkrar myndir úr Hrísey af fótunum á stelpunum og eitthvað svona rugl. Hins vegar verð ég að útnefna Lóu sem módel ársins.... dí hvað ég á mikið af gellumyndum af henni.... enda er hún algjör skutla ;-)

Fékk fyrstu útborgunina fyrir spilamennskuna í dag.... veiiii. Ekki amalegt og ég verð að kaupa mér eitthvað á morgun til að halda uppá það :-) haha

Fer uppí skóla á eftir til að búa til auglýsingar fyrir Sprellmótið..... ég hlakka svooo til.... Sprellmótsins sko, þótt það verði örugglega líka gaman í kvöld!! Á morgun ætlar svo Eva formaður að bjóða REKA stjórninni í mat og halda óformlegann fund, gaman að því.

Vil óska Hölla, Steina, Benna og Siffa innilega til hamingju með magnaðann árangur í MSB keppninni sem var um helgina... þriðja sæti :-)

mánudagur

Snilld :-) 

Hahaha......


sunnudagur

Yfirlit 

Við erum semsagt búin að borða tittlingana... eða gamla settið borðaði þá, mér datt það ekki einu sinni til hugar. Í stuttu máli var samþykkt að þetta fæði yrði ekki keypt aftur...... sjúkk.

Ég er ógeðslega reið útí Skjá einn í augnablikinu. Las í Fréttablaðinu að það á að byrja að talsetja Malcolm á íslensku.... það er ekki allt í lagi með fólk og ég er sko ekki að gúddera þetta.

Annars þá er Lóa aftur byrjuð að blogga..... ég var komin með ansi gott forskot á hana en hún er öll að koma til... í öllum merkingum :-) vííí

Gísli bróðir, Stína og Sunna Kristín eru búin að vera í heimsókn hjá okkur um helgina en fara aftur á morgun. Sú stutta er ekkert smá sæt.... þegar ég er búin að læra að setja inn myndir þá fáið þið að sjá hana.
Helgin er annars búin að vera mjög róleg og góð. Ég, Karen, Harpa Björk og Birna hittumst heima hjá Elsu í gær og höfðum það gott - kjöftuðum út í eitt!!!
Ég er að huXa um að koma mér úr náttfötunum og læra eitthvað.... jafnvel æfa mig, var að fá ógeðslega erfiðar nótur sem ég á að spila á tónleikum 24. okt með SN.... meira um það seinna.


miðvikudagur

ÓGEР

já ég skal sko segja ykkur það kæru vinir að í þrjá daga hef ég kúgast um leið og ég opna ískápinn.... ástæðan er einföld, hún móðir mín verslaði einhverjar ógeðslegar Bratwurste pylsur um daginn og þetta ógeð blasir við mér í hvert skipti sem ég opna ísskápinn.... þetta lítur út eins og fjórir tittlingar sama í pakka!!!

mánudagur

Kominn mánudagur og þar sem veðrið var svo vont þegar ég vaknaði (snjókoma, mikill vindur og kuldi) ákvað ég að vera heima í dag og chilla undir teppi og horfa á sjónvarpið. Núna er klukkan orðin þrjú, það er komin sól og mér finnst ég vera að svíkjast undan að vera ekki að læra, þannig að núna á að snúa sér að lærdómnum. Horfði samt á eldgamlan Baywatch þátt áðan.... ógeðslega fyndið. Hobie litli svona 6 ára og Pamela Anderson í aðalhlutverki og Hasselhoffinn ungur.... mjög skemmtilegt allt saman.

Fór á geisladiskamarkað um daginn og hefði geta verslað mér fullt af diskum, en ég verslaði mér bara fjóra.... ekkert ofboðslega ódýrt á þessum markaði en fullt til. Jamm, verslaði mér semsagt Deep Purple; In rock, Carole King, Creedence Clearwater Revival og disk með lögunum úr Braveheart, það er alveg ógeðslega góður diskur.

Er að hugsa um að reyna að læra eitthvað smávegis og svo er það skemmtifundur í kvöld..... partí vonandi um næstu helgi!!

Afmælisbarn dagsins er Harpa Hrönn og óska ég henni innilega til hamingju :-)

...... ég er hérna í Safamýrinni, húsið er númer... æi ég sé ekki alveg númerið en síminn er 38243 og hringdu bara í 03, en ég fann fjarstýringuna....!!!


laugardagur

Föstudagur 

Ég er núna búin að skrifa um gærdaginn tvisvar sinnum en það fer alltaf í fock.... þið fáið bara stutta útgáfu því ég nenni ekki að skrifa þetta allt enn eina ferðina (finnst ykkur votta fyrir pirring...)
- Vísindaferð í Íslandsbanka..... bjór
- Dátinn..... bjór og pizza. Horfðum líka á Idol sem kom virkilega á óvart.
- Klukkan orðin tíu, ég og Harpa Björk ákváðum að fara fullar í bíó..... Italian job.... fullur salur þannig að við þurftum að sitja FREMST
- Smygluðum bjórnum inn og sátum að svambli með popp og nammi að reyna að horfa á myndina.
- Mjög erfitt að fókusa á risa stóran skjá sem er beint upp við andlitið á manni.... það tekur á augun og þau verða þreytt
- ég sofnaði
- myndin búin og Harpa sagði að hún hefði verið ágæt..... ég verð að trúa henni
- Stutt stopp á Kaffi Ak þar sem við hittum Karen og Thelmu í þrusu stemmara
- heim
- Vaknaði og þreyf herbergið mitt hátt og látt..... enda lærdómsheilasellurnar dauðar
- Chill í kvöld

Harpa átti setningu kvöldsins: " jááá.... myndin heitir Italian job, þess vegna gerist hún í Feneyjum!!!"


fimmtudagur

Útsendarar djöfulsins voru á ferðinni í gær og rúntuðu um bæinn. Lenti semsagt á eftir tveim. Annar var að keyra í gegnum rúntinn og ég eftir, hann var á 7 km hraða og ekki nóg með það heldur dreyfði hann ógeðslegu eiturefni út um púströrið... ég hóstaði og hóstaði og er sannfærð um að þetta var miltisbrandur (ef hann er þá til í gufuformi). Ég keyrði næstum því á hinn útsendarann. Var ný búin að losna við þann fyrri. Ég var svo fegin að vera laus við hann, að ég þandi græjurnar í bílnum og setti It´s my life með Bon Jovi í botn og söng hástöfum með..... þá allt í einu var bíll bara stopp á miðri götu..... en viðbragðsfljóta ég, rétt náði að stoppa.....

Lenti í ógeðslega fyndnum útlending uppi í skóla áðan. Var að gera verkefni með Stefaníu og þá kom þessi maður labbandi að okkur (hann var búinn að sitja á næsta borði við okkur í dágóðan tíma og var að æfa sig í íslensku) hann semsagt segir við okkur: þakka ykkur fyrir (eða við höldum það..... MJÖG erfitt að skilja hann) Þá sagði Stefanía við hann til baka: verði þér að góðu.... þá kom voða lúkk á gaurinn og hann varð ferkar vandræðalegur en sagði svo: ég veit það ekki.... horfði í allar áttir, tönglaðist á því að hann vissi það ekki, roðnaði og ég veit ekki hvað og hvað..... Hann skildi greinilega ekkert hvað Stefanía sagði, hélt örugglega að hún væri eitthvað að reyna við sig og varð svona líka vandræðalegur...... OK, þetta var ógeðslega fyndið. Leik þetta fyrir ykkur einhvern daginn!!

Þegar ég vaknaði í morgun var kominn snjór.... og það ekkert smá sem hverfur um leið. Ónei. Ég var ekki búin að undirbúa mig undir það að það færi að snjóa næstum því strax og er þess vegna hálf miður mín og að frjósa úr kulda. Ég hef alltaf gluggann á herberginu mínu mikið opinn á nóttunni (svona til þess að fá almennilegt loft) en þið getið ímyndað ykkur kuldann sem fylgir því að hafa opinn glugga..... ég þarf að taka á honum stóra mínum til að fara undan sænginni á morgnana......

Jæja, hætt í bili og farin í sjóðandi heitt bað :-)

Elska guttann sem fann upp Smarties súkkulaðistykkið...... hvítt súkkulaði og smarties.... uppáhaldið mitt, gerist ekki betra!!!


þriðjudagur

Þá er enn einn þriðjudagurinn runninn upp. Það er nú ekki mikið að gerast hjá mér þessa dagana en þó eitthvað.
Þar sem ég er skemmtanastjóri REKA (já, það er satt.... og ferlega skemmtileg saga hvernig ég komst inn í innsta hring mafíu skólans, læt hana kannski flakka einn daginn) já semsagt þá fór ég á fund í gær og hitti skemmtanastjóra hinna deildanna og þá sem eru í íþróttanefnd. Við vorum að skipuleggja Sprellmótið sem verður haldið 10. okt. Þetta er alltsaman ljómandi fólk og ég hlakka til að vinna með þeim.
Á föstudaginn er svo vísindaferð í Íslandsbanka og eftir það munu allar deildirnar hittast á Dátanum.... eða þeir sem vilja mæta. Næstu helgi ætlar skemmti- og íþróttanefndin að halda partí, svona svo við kynnumst nú almennilega. Helgina þar á eftir er frí (allavegna í augnablikinu.... Stuðmenn samt í Sjallanum) og svo helgina eftir það er Sprellmótið...... Ekkert skemmtilegra en það. Þannig að það er nóg um að vera í skemmtanalífinu, svo er auðvitað alltaf skóli, næg heimavinna og inn á milli blæs ég í rörið mitt!!

.... Þú ert vangefið djöfullsins grey!!!

sunnudagur

Gærkvöldið 

Það var semsagt ákveðið að fara út á lífið í gær. Lóa mætti í bæinn og Grjónið gladdi okkur einnig með nærveru sinni (hann er bæ ðe vei að fara til Serbíu 22. sept.... bara snilld)
Ég hringdi í Gulla og hann var svo góður að leyfa okkur að hafa smá teiti heima hjá sér. Þar vorum ég, Lóa, Gulli, Einar, Inga, Haukur, Karen og Grjóni.... þegar allir voru orðnir vel svartir var haldið í bæinn og þar húkkuðum við Hörpu upp. Ég fann gamlan Sjallamiða á götunni og ákvað að hirða hann og reyna að komast á honum inn (það er sko ekkert grín að borga sig inn í Sjallann).... það gekk eins og smurt að smyglast inn og þegar þangað var komið tóku við endalaus hopp og læti, það gengur ekkert annað þegar maður fer á ball með Pöpunum. Ljómandi skemmtilegt ball og kvöldið í heild var æðislegt!!! Ofboðslega á ég skemmtilega vini :-)

Núna er ég ógeðslega þreytt en ætla að horfa á mynd í Ríkissjónvarpinu um drykkfeldann námumann, óhamingjusama konu hans og börnin þeirra..... hljómar æðislega

laugardagur

Nýr bloggari 

Hún Guðbjörg elskan er byrjuð að blogga og vil ég bjóða hana hjartanlega velkomna :-) Bloggar frá Danmörku og á bæði íslensku og dönsku.... maður hefur bara gott af því að rifja þetta hrognamál upp!!

Hvað er málið 

Ég sá 4 síðustu spurningarnar í Djúpu lauginni í gær.... Keppandi númer eitt fékk alltaf stig. Ég hélt að tilgangur leiksins væri sá að spyrillinn gæfi þeim keppanda, sem honum lýst best á, stig og veldi svo þann með flest stigin og færi með honum í ferð. í gær þá semsagt valdi stelan keppanda númer eitt af því að henni líkaði best við svörin frá honum. Þá hefði ég nú haldið að þau ættu eftir að fara saman í ferð og skemmta sér rosalega vel.... nei nei. Þessi gella sem var að spyrja sá semsagt gaurinn sem hún valdi, sagði svo að þau væru OF LÍK og skipti honum út fyrir annan gaur.... Niðurlæging frá helvíti. Af hverju í andskotanum valdi hún þann sem hún gaf flest stig fyrst þau voru svona lík..... Heldur hún að hún muni skemmta sér betur með þeim aðila sem henni leist ekkert á svörin hjá, heldur en þessum sem henni leist svo vel á áður en hún sá hann. Ég sver það að þetta hlýtur að verða til þess að fólk þorir ekki að koma í þáttinn.... Ég myndi ALDREI fara í þennan þátt núna..... þvílíkt rugl sem þeta er orðið.
Ég er líka viss um það að stelpur þora frekar að skipta heldur en strákar.... þær geta verið svo miklar tíkur. Strákar hugsa frekar um hagsmuni stelpunnar. Strákurinn myndi frekar láta sig hafa það í stað þess að særa gelluna, enda gæti hún farið að gráta því þetta er engin smá höfnun. Nei nei, stelpan lét hann bara flakka og henni gat ekki verið meira sama..... ég fann til með stráknum!!

föstudagur

Tónlist 

Ég átti alveg meiriháttar kvöld í gær. Ég var í tölvunni að sækja lög á netið (þar sem ég er nánast hætt að hlusta á útvarpið, einfaldlega vegna leiðinlegs útvarpsefnis, þá brenni ég mína eigin diska og hlusta á þá.... allir sáttir) Pabbi kom svo inn og heyrði hvað ég var að spila (þá hljómaði hljómsveit sem heitir Blood Sweat and Tears) og leyst svona ljómandi vel á mig. Þannig að við eyddum gærkvöldinu í það að skoða og hlusta á plötusafnið hans og það er sko ekkert smáræði. Iron Butterfly, Humble pie, Colosseum og auðvitað Blood Sweat and Tears, að auki alltskonar blúsbönd og að sjálfsögðu meistarastykki á borð við Jethro tull; Thick as a brick og að ógleymdum snillingunum í Pink Floyd. Plötusafnið hans pabba er æðislegt....
Ég fór í Bókval áðan og fjárfesti í einum geisladisk, Rod Stewart; The great American songbook.... Líney á þennan disk og hann er æði þannig að ég verslaði mér hann líka.

Síminn minn er veikur.... þið getið rétt ímyndað ykkur hvað ég er sorgmædd, ég elska þennan síma út af lífinu og að fá þær fréttir að hann sé bilaður er eins og ef kærastinn manns myndi veikjast.....ég fór með hann í búðina og þeir gerðu ekki mikið mál úr þessu heldur létu mig bara fá nýjan.... OK, þar fór myndlíkingin. Ég myndi aldrei fara með kærastann minn á sjúkrahús og skila honum og fá nýjan ef hann myndi veikjast. Þannig að ég tók mér tak og núna er þetta bara sími!!


fimmtudagur

Meira ruglið 

Ég var að taka til í símaskráinn í símanum mínum áðan (já, ég gera allt í staðin fyrir að læra) og þar var Nauðgarinn á meðal manna. Hmmm, ég fór að velta því fyrir mér hvort þetta væri einhver sem ég þekki og ég hafi bara sett hann sem Nauðgarinn í símann minn (ógeðslega fyndið) eða hvort þetta væri virkilega númerið hjá hinum eina sanna Nauðgara. Þannig að ég fór í símaskrána til að sjá hver eigandi þessa númers væri..... einmitt, einhver Þórir sem býr í Reykjavík og er titlaður múrarameistari. Ekki veit ég hver það er þannig að það hefur einhver verið að rugla í mér á djamminu og logið því að hann hefði númerið hjá hinum eina sanna Nauðgana.... vááá, ég hef að sjálfsögðu verið æst í að fá númerið þannig að þessi aðili hefur bullað eitthvert númer og ég voða glöð að vera með númer Nauðgarans. Ég hef nokkra grunaða um þetta athæfi og þá sérstaklega Binna og Grjóna....

Það er mikil pressa á mér þessa dagan...... Djamma eða ekki djamma um helgina!!! Lóa mín þú veist að ég geri allt fyrir þig, þannig að þú lætur bara vita hvar partíið verður og ég mæti :-) jæja þá er pressan farin, þetta tók um 6 sek.

þriðjudagur

Hitt og þetta 

Úfff, fyrstu skólatónleikarnir voru í dag og voru það Húsvíkingar sem voru þess heiðurs aðnjótandi að fá okkur í heimsókn. Versta við þetta er að ég þurfti að vakna klukkan hálf sjö í morgun, skrölta í rútu í klukkutíma, spila þrenna tónleika og skrölta svo aftur til baka. Maður verður ekki bara dofinn í líkamanum á því að sitja í rútu, heldur verður heilinn eitthvað sljór líka... ég komst aldrei almennilega í gang!
Er að huXa um að fara á lúðrasveitaæfingu í kvöld, ekki það skemmtilegasta. Það er til dæmis einn 13 ára strákur sem spilar á trompet og alltaf þegar hann er ekki að spila þá leikur hann sér með trompetinn, ímyndar sér að hann sé riffill og skýtur stjórnandann.... svo er annar sem er í svo miklum mútum að ég hreinlega vorkenni greyið drengnum í hvert skipti sem hann opnar munninn. Gaman að þessu.

Hún Karen á ammæli í dag, til hamingju með það :-) Ætlaði að finna þig uppí skóla og smella á þig einum vel blautum en ég fann þig ekki. Óheppin þú, verður að bíða í ár eftir öðrum svona sveittum....

Annars er það að frétta að ég er ástfangin...... ójá, síminn minn er æðislegur og ég gjörsamlega elska hann.
Ég er líka alveg í skýjunum yfir því að Skjár einn er byrjaður að endursýna fyrstu seríuna af Malcolm.... frábærir þættir og svo er Bjössi búinn að sækja nokkra Family guy þætti á netið!! Takk Gossi fyrir að hafa kynnt okkur fyrir þessum æðislegu þáttum :-) Nú verður sko dansað.

Hall mín, ég er að vinna í slúðrinu..... en takk fyrir ÖLL smsin sem þú sendir mér. Vá, mér leið eins og ég ætti næstum því vini..... 8 sms í röð.....

....kannast einhver við spur???

laugardagur

Nýr sími 

Ég er semsagt búin að kaupa mér nýjan síma.... engin smá græja. Þá er ég búin að eiga NOKIA, Siemens og núna er það Samsung. Þar sem ég á svo ógeðslega mikið af peningum þá bara varð ég að eyða þeim í eitthvað. Gulli fór með mér í búðina og við völdum það flottasta og dýrasta!! Mig LANGAÐI í digital myndavél en mig VANTAÐI nýjan síma og ég er ógeðslega ánægð með hann. Get ekki beðið eftir að hann verði búinn að hlaða sig svo ég geti byrjað að fikta.... víííí

En núna þarf ég bara að losna við gamla símann... einhver tilboð??

föstudagur

Váá, ég er klofinn persónuleiki.... hver tekur svona próf og fær þrjár niðurstöður í einu!!! Já já, svona er þetta....


Sjáðu hvaða týpa þú ert


Sjáðu hvaða týpa þú ert


Sjáðu hvaða týpa þú ert



fimmtudagur

Hahaha.... Hann Kobbi frændi er kominn með nýjan lið inní bloggið sitt sem ber heitið kynlífshornið..... fyrsta stellingin kallast steinbíturinn og þið sjáið nánari lýsingu á henni hér.... með myndum og allt!!

þriðjudagur

Skólinn 

Jæja þá er skólinn byrjaður. Ég er bara í skemmtilegum fögum.... alþjóðaviðskipti, stefnumótun, lögfræði, stjórnun 3 og neytendur ferðaþjónustu.

Hitti hann Bjössa á msn áðan og við ákváðum að reyna að prófa að tala saman í gegnum msn.... ekki skrifa heldur tala. Það var ógeðslega fyndið, ég heyrði vel í honum en ég gat ekki talað á móti. Tengdi mæk við tölvuna og allt en ekkert gekk. Þannig að hann talaði en ég þurfti að skrifa allt til að svara honum. Ég fékk góða sýn inn í heim mállausra, gat ekkert tjáð mig nema skrifa það á meðan hann talaði við mig á fullu.... en ofboðslega verður gaman þegar við getum talað saman í gegnum msn.... Svona er tæknin orðin rosaleg og msn er algjör guðsgjöf :)

.... ég safnaði einu sinni biblíumyndum, hætti þegar ég var komin upp í hundrað og þrjátíuþúsund!!!!

mánudagur

Menningarlegust 

Á laugardaginn átti Akureyri semsagt afmæli og því var ansi mikið um að vera í bænum. Það var nú samt enginn aragrúi af fólki, en slatti þó. Ég og mamma ákváðum að gerast menningarlegar og fórum í bæinn til að skoða þau söfn sem voru opin, Hildur móða (móðursystir) og tvær dætur hennar komu með. Listagilið ber nafn með rentu.... fórum á einhverjar þrjár "myndlistasýningar" og eina fatahönnunarsýningu. Svo var sest niður á Bláu könnuna, besta kaffihúsið, þarna sátum við uppvið gluggann og höfðum brilliant útsýni yfir bæinn og það fólk sem var í honum.... ferlega fyndið að hlusta á mömmu og Hildi; er þetta ekki hann Jón sem var giftur Hólmfríði?? Rosalega hefur hann breyst. Sonur þeirra er að meika það úti og er giftur dóttur þeirra Helga og Ólafar... manstu hann var með Goggu í bekk (það er semsagt önnur systir þeirra)...... daaaa.
Það sem við sáum næst vil ég ekki flokka sem menningu og alls ekki list, heldur sem geðveiki.... Anna spuni var semsagt mætt á svæðið með einhvern gjörning. Úffff, hún er svo snar klikkuð kellingin. Ég man þegar ég og Bjössi vorum að læra á blokkflautu, þá var skylda að vera í spunatíma hjá henni einu sinni í viku.... "krakkar, leikið eldgos....passið ykkur, hraunið er að ná ykkur... " (sagt með mjög dramatískri röddu) Ekki nema von að maður sé eitthvað smá skrýtinn!!
En þetta var ljómandi dagur og ég endaða kvöldið með sveitta Tikk takk nautaloku og horfði á Sódómu :-)

Var að spila í allan gærdag, hef ekki spilað svona mikið í tvö ár þannig að þetta tók virkilega á.... fann áður óþekkta vöðva í bakinu.
Svo var það bíó í gærkvöldi með henni Hörpu og sáum við American Wedding.... Fyrsta myndin er auðvitað LANG best en svo verða þær alltaf ýktari. Mér fannst hún fyndin en alls ekki jafn góð og hinar tvær.... Annars er ég ekki mikill bíómyndagúrú.

Síðasti dagurinn áður en alvaran hefst....

This page is powered by Blogger. Isn't yours?