mánudagur
Þreyta
Þetta er alveg rosalegt... í gærkvöldi var ég svo þreytt að ég lognaðist útaf kl.10 og vaknaði ekki fyrr en 9:30 morguninn eftir út frá símanum....hefði sko getað sofið í aðra 11 og 1/2 tíma..... En það var blessuð blíðan þannig að ég drattaðist framúr og alla leið út á pall þar sé ég lá/svaf í sólbaði til 12. Þurfti að næra mig lítið eitt en var komin aftur út á pall hálftíma seinna. Svaf þar til 4 en þá fór ég inn, hékk uppi í sófa og horfði á frjálsar. Núna er klukkan rétt rúmlega hálf 10 og ég held varla augunum opnum.... Þetta er ekkert eðlilegt, eða ekki get ég trúað því. Á ég svona innilega EKKERT líf??? Hmmm, veit að svarið við þessari spurningu er já... ég hef nú aldrei átt neitt líf, ekkert frekar en einhverja vini..... en ég hef aldrei verið svona ofboðslega þreytt fyrir því. Það er mér greinilega ofviða að vera í fríi og gera ekki neitt, það tekur á!!!
Hann Toni minn á afmæli í dag....innilega til hamingju með það :-)
Hann Toni minn á afmæli í dag....innilega til hamingju með það :-)