miðvikudagur
Kommentkerfið...
...er semsagt í einhverju focki. Ég veit að ég á enga vini, en að vera með blogg og fá ekki neitt komment gerir það heldur betur augljóst. Ég var farin að halda að fólkið sem mamma og pabbi borga fyrir að tala við mig væru bara öll hætt, ekki á nógu háum launum....vonandi er það ekki það heldur bara bilað kommentkerfi. Þetta mun þó allt koma betur í ljós þegar einhver segir mér hvernig eigi að laga það....