<$BlogRSDUrl$>

laugardagur

Gærkvöldið 

Ég, Lóa og Birna drifum okkur í ljós og svo í pottinn á eftir, ekkert betra en heitapottur og bjór. Ég fer aldrei í ljós og átti því í mestu erfiðleikum með að liggja kyrr í þessum blessaða bekk. Ógeðslegur hiti og viðbjóðsleg tónlist í tækinu (ekki kunni ég að skipta um rás). Potturinn var sem betur fer ekkert of heitur en þar lágum við í nokkurn tíma og höfðum það ógeðslega gott. Ég hélt samt að líf mitt væri á enda þegar ég var búin að klæða mig og fór fram til að greiða mér og mála mig... Það var allt á bullandi suðu inni mér og ég svitnaði og svitnaði og hélt ég myndi andast á staðnum (ekki skemmtilegur dauðdagi að deyja eftir ljós.... en þó skárra en að vera drepin í Hrísey) Jæja, við löbbuðum svo heim til Steina þar sem við hittum hann og Binna. Seinna um kvöldið komu fleiri og það var mjög góður stemmari í hópnum. Allt í einu langaði Birnu voða mikið í bæinn þannig að hún fór þangað en ég og Lóa urðum eftir hjá Steina. Þarna sátum ég, Lóa, Steini, Binni, Toni og Hlynur og horfðum á Kiss!!!! Þvílík átfitt sem þessir menn voru í..... það er sko hægt að hlægja að þessu. Ofboðslega var gaman að hitta strákana aftur....
Ég drattaðist svo á fætur um hádegi og er búin að liggja úti í sólbaði í mest allan dag á náttfötunum, er samt að hugsa um að drífa mig í heitt bað núna... fátt betra en það!!

This page is powered by Blogger. Isn't yours?